Make Text Bigger Make Text Smaller Reset Text Size
throttur.net

Samstarfsaðilar





Samstarfsaðilar

Sveitarfélagið Vogar Your ad here Joomla templates and extensions Your ad here Your ad here Your ad here Your ad here Your ad here Your ad here Your ad here
Dansnámskeið fyrir krakka!

Skemmtilegt 8 vikna dansnámskeið fyrir bæði stelpur og stráka.

Michael Jackson dansar verða í fyrirtúmi með blöndu af skemmtilegum dönsum við vinsælustu lögin í dag.

Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum.

Kennt er í 50 mínútur í senn, einu sinni í viku á þriðjudögum,

Kl. 18:30 6-11 ára

Kl. 19:30 12-16 ára

 

Verð á námskeið: 8.900 kr.

Námskeiðið byrjar þriðjudaginn 2. mars í Borunni.

Skráning fer fram í Íþróttahúsinu hjá Þrótti 24. og 25. febrúar.

 
Kæru foreldrar fótboltabarna

 

Nú er komið að aðalfundi foreldrafélagsins í fótboltanum, en hann verður haldinn þriðjudaginn 9. febrúar í Lionshúsinu klukkan 20:00.

Á dagskrá verða venjubundin aðalfundarstörf, farið yfir skýrslu stjórnar, ársreikning og kosið í nýja stjórn foreldrafélagsins.

Við viljum hvetja alla til að mæta og taka þátt.  Þátttaka foreldra skiptir miklu í tómstundastarfi barnanna okkar.

 

Bestu kveðjur, stjórnin.

 

 
Nýjar júdódýnur hjá Þrótti

Nýverið keypti UMF Þróttur nýjar júdódýnur fyrir júdódeild félagsins. Dýnurnar komu í hús rétt fyrir jól, júdóiðkendum til mikillar gleði og var þeim komið á sinn stað hið snarasta enda búið að bíða eftir þeim lengi. Dýnur af þessu tagi kosta skildinginn og var því fé sem Hilmar Egill Sveinbjörnsson og Gunnar Júlíus Helgason söfnuðu í Landsgöngunni 2007 (21 dags ganga frá Fonti á Reykjanestá) m.a. varið til kaupanna.

Júdódeildinni er óskað innilega til hamingju með fenginn og er það von stjórnar UMF Þróttar að nýjar dýnur verði lyftistöng fyrir hið mikla, fórnfúsa og góða starf sem í júdódeildinni er unnið.

 
Nýtt tímabil að hefjast

Nú er nýtt tímabil að hefjast og hvetjum við foreldra til þess að senda okkur upplýsingar ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) um börn og systkini sem munu æfa á vetrarönn 2010 (janúar - apríl).

 

 
Jólamót knattspyrnudeildar 2009

                 

Ungmennafélagið Þróttur

Jólamót knattspyrnudeildar 2009

Til að fagna jólafrísins hefur verið ákveðið að halda jólamót í íþróttahúsinu fimmtudaginn 17. desember. Öllum iðkenndum sem mæta verða skipt í lið og spilaður verður 5 manna bolti. Það kostar 300 krónur að taka þátt í mótinu og æskilegt er að láta þjálfara vita sem fyrst ef þið komist ekki. Boðið verður uppá  hressingu milli leikja og verðlaun fyrir flottasta liðið. Fjörið byrjar kl. 16:00 og stendur til kl.18:30.

Muna að mæta með íþróttafót, innanhússkó og í jólaskapi.

Að móti loknu förum við í jólafrí og munu æfingar hefjast á nýjan leik

mánudaginn 11. janúar.

Jólakveðjur

Baddi, Ragnar,  Hilmar og Matti  

 

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL