|
Ungmennafélagið Þróttur hefur um nokkurt skeið stefnt að því að fá að halda unglingalandsmót UMFÍ í Sveitarfélaginu Vogum árið 2012. Hugmynd sú varð að engu er formaður UMFÍ tilkynnti Þrótti eftir fund með fjárlaganefnd ríkisins að ríkið komi ekki til með að styrkja sveitarfélög til framkvæmda við uppbyggingu íþróttamannvirkja á þessu ári.
|
|
|
Strákarnir úr Þrótti Vogum voru að hita upp þegar okkur bar að garði. Þeir voru að fara í sinn fyrsta leik á mótinu og voru að fara mæta Val og þeir voru alveg staðráðnir í að vinna Val. En ef þið vinnið ekki Val hvað þá ,, þá bara reynum við að hafa gaman af þessu” og einn úr hópnum sagði ,, ég er sko komin til að vinna frænda minn … eins og ég gerði í fyrra”. Flestir þeirra höfðu áður komið á Goðamót og það hafi verið rosalega gaman.
Já það er greinilega gaman á Goðamóti
|
|
Dansnámskeið fyrir krakka! |
|
Skemmtilegt 8 vikna dansnámskeið fyrir bæði stelpur og stráka.
Michael Jackson dansar verða í fyrirtúmi með blöndu af skemmtilegum dönsum við vinsælustu lögin í dag.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum.
Kennt er í 50 mínútur í senn, einu sinni í viku á þriðjudögum,
Kl. 18:30 6-11 ára
Kl. 19:30 12-16 ára
Verð á námskeið: 8.900 kr.
Námskeiðið byrjar þriðjudaginn 2. mars í Borunni.
Skráning fer fram í Íþróttahúsinu hjá Þrótti 24. og 25. febrúar.
|
|
Kæru foreldrar fótboltabarna |
|
Nú er komið að aðalfundi foreldrafélagsins í fótboltanum, en hann verður haldinn þriðjudaginn 9. febrúar í Lionshúsinu klukkan 20:00.
Á dagskrá verða venjubundin aðalfundarstörf, farið yfir skýrslu stjórnar, ársreikning og kosið í nýja stjórn foreldrafélagsins.
Við viljum hvetja alla til að mæta og taka þátt. Þátttaka foreldra skiptir miklu í tómstundastarfi barnanna okkar.
Bestu kveðjur, stjórnin.
|
|
Nýjar júdódýnur hjá Þrótti |
|
Nýverið keypti UMF Þróttur nýjar júdódýnur fyrir júdódeild félagsins. Dýnurnar komu í hús rétt fyrir jól, júdóiðkendum til mikillar gleði og var þeim komið á sinn stað hið snarasta enda búið að bíða eftir þeim lengi. Dýnur af þessu tagi kosta skildinginn og var því fé sem Hilmar Egill Sveinbjörnsson og Gunnar Júlíus Helgason söfnuðu í Landsgöngunni 2007 (21 dags ganga frá Fonti á Reykjanestá) m.a. varið til kaupanna.
Júdódeildinni er óskað innilega til hamingju með fenginn og er það von stjórnar UMF Þróttar að nýjar dýnur verði lyftistöng fyrir hið mikla, fórnfúsa og góða starf sem í júdódeildinni er unnið.
|
|
|
|
|