|
Nú er nýtt tímabil að hefjast og hvetjum við foreldra til þess að senda okkur upplýsingar (
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
) um börn og systkini sem munu æfa á vetrarönn 2010 (janúar - apríl).
|
|
|
Jólamót knattspyrnudeildar 2009 |
|
Ungmennafélagið Þróttur
Jólamót knattspyrnudeildar 2009
Til að fagna jólafrísins hefur verið ákveðið að halda jólamót í íþróttahúsinu fimmtudaginn 17. desember. Öllum iðkenndum sem mæta verða skipt í lið og spilaður verður 5 manna bolti. Það kostar 300 krónur að taka þátt í mótinu og æskilegt er að láta þjálfara vita sem fyrst ef þið komist ekki. Boðið verður uppá hressingu milli leikja og verðlaun fyrir flottasta liðið. Fjörið byrjar kl. 16:00 og stendur til kl.18:30.
Muna að mæta með íþróttafót, innanhússkó og í jólaskapi.
Að móti loknu förum við í jólafrí og munu æfingar hefjast á nýjan leik
mánudaginn 11. janúar.
Jólakveðjur
Baddi, Ragnar, Hilmar og Matti
|
|
Marteinn Ægisson ráðinn þjálfari 5/6 fl. kvk |
|
Marteinn Ægisson hefur verið ráðinn þjálfari yfir 5. og 6.fl kvenna hann byrjar 10.11 og verða æfingar skv. æfingatöflu.
Við óskum Martein velkominn til starfa.
Stjórn Þróttar |
|
Vignir þjálfari er hættur |
|
Vignir þjálfari er hættur sem þjálfari hjá Þrótti. Við þökkum honum fyrir vel unnin störf á liðnum árum á sama tíma og við óskum honum velfarnaðar á nýjum vettvangi. Æfingar hjá flokkum hans falla niður í dag 6.11 en þjálfaramál ættu að skýrast um helgina.
Stjórn Þróttar |
|
Gallar, stuttbuxur og gerfigrasbuxur |
|
Hægt verður að sækja íþróttagalla, stuttbuxur og gerfigrasbuxur í kvöld 4.11 milli 19:00 og 20:00.
Kveðja, Fatanefnd
|
|
|
|
|