|
Sumarfrí í yngri flokkum 2009 |
|

Mótanefnd KSÍ tekið þá ákvörðun varðandi niðurröðun leikja sumarið 2009 að engir leikir verði á tímabilinu 20. júlí til og með 5. ágúst í 4. flokki og yngri aldursflokkum. Hér er eingöngu átt við leiki á vegum KSÍ en ekki opin mót aðildarfélaga.
Ákvörðunin er tekin í ljósi þess að mikið er um sumarfrí á þessu tímabili og því vill mótanefnd koma til móts við leikmenn í yngstu flokkum og foreldra þeirra.
Ekki leikið í 4. flokki og yngri aldursflokkum á tímabilinu 20. júlí - 5. ágúst
|
|
|
OPIÐ HÚS hjá yngri flokkunum |
|
„Opið hús“ yngri flokkana í knattspyrnu verður haldið í félagsmiðstöðinni fimmtudaginn 26. febrúar n.k. og hefst klukkan 16:00. Krakkar eru hvattir til að koma með spil og nesti (má vera gos, snakk, nammi), svo skemmtum við okkur vel. Hápunkturinn verður svo þegar veitt verða verðlaun fyrir febrúarmánuð.
Allir að mæta með góða skapið!
|
|
OPIÐ HÚS hjá yngri og eldri flokkunum í knattspyrnu |
|
„Opið hús“ verður í félagsmiðstöðinni Borunni fyrir alla karla og kvenna, fimmtudaginn 29. janúar kl. 16:00. Krakkar eru hvattir til að koma með spila og nesti (má vera eitthvað gos og eitthvað sætt), svo ætlum við að skemmta okkur vel. Hápunkturinn verður svo þegar veitt verða verðlaun fyrir bestu mætinguna í mánuðinum og fyrir besta leikmann janúarmáðanaðar. Allir að mæta með góða skapið ! Þjálfarar og foreldrafélag Umf. Þróttar
|
|
Íslandsmótið í Futsal - 3. fl. kv. og 5. fl. kk |
|
Laugardaginn 31. janúar 2009, taka tveir flokkar þátt fyrir hönd Umf. Þróttar Íslandsmótinu í Futsal, 3. flokkur kvenna og 5. flokkur karla. Stelpurunar í 3. flokki kvenna spila í sínum riðli í íþróttamiðstöðinni í Garðinum. Þær eru í riðli með Víði Garði, Haukum, Breiðablik og Reyni Sandgerði. Fyrsti leikurinn er kl. 13 og á móti Haukum og síðasti er kl. 15:51. 5. flokkur karla munu spila í sínum riðli í Reykjavík á laugardaginn í Framheimilinu, við Safamýri. Í riðli með Þrótti V eru Grótta, Fram og KFR. Fyrsti leikurinn hjá strákunum hefst kl. 15:15 á móti Gróttu.
ÁFRAM ÞRÓTTUR V.
|
|
Íþróttaskóli Umf. Þróttar |
|
Íþróttaskóli UMFÞ hefst mánudaginn 12. janúar og verður til loka apríl. Breyting á æfingatíma hjá börnum fædd. 2004 – 2006, æfingar sem áður voru á miðvikudögum og föstudögum færast yfir á laugardaga.
|
|
|
|
|