Make Text Bigger Make Text Smaller Reset Text Size
throttur.net

Samstarfsaðilar

Sveitarfélagið Vogar Nautilus Bláa Lónið KSÍ Snerta kassakerfi UMFÍ Þorbjörn Fiskanes Kvígan Norðurál 190.is - Fyrir Vogabúa Hlaðbær - Colas Nesbú egg! - sandur af seðlum!
Nýjar júdódýnur hjá Þrótti

Nýverið keypti UMF Þróttur nýjar júdódýnur fyrir júdódeild félagsins. Dýnurnar komu í hús rétt fyrir jól, júdóiðkendum til mikillar gleði og var þeim komið á sinn stað hið snarasta enda búið að bíða eftir þeim lengi. Dýnur af þessu tagi kosta skildinginn og var því fé sem Hilmar Egill Sveinbjörnsson og Gunnar Júlíus Helgason söfnuðu í Landsgöngunni 2007 (21 dags ganga frá Fonti á Reykjanestá) m.a. varið til kaupanna.

Júdódeildinni er óskað innilega til hamingju með fenginn og er það von stjórnar UMF Þróttar að nýjar dýnur verði lyftistöng fyrir hið mikla, fórnfúsa og góða starf sem í júdódeildinni er unnið.

 

Comments  

 
0 #1 Max 2010-03-02 22:23
Glæsilegt framtak, mátti ekki seinna vera. Vona það verði farið vel með þessar dýnur til að þær endist næstu 20 árin. Góðir menn sem söfnuðu fyrir þessu og óeigingjarnt, hugsjónastarfs þeirra sem halda deildinni uppi. Munið ekki inn á skóm
Quote
 

Add comment