| Kæru foreldrar fótboltabarna |
|
Nú er komið að aðalfundi foreldrafélagsins í fótboltanum, en hann verður haldinn þriðjudaginn 9. febrúar í Lionshúsinu klukkan 20:00. Á dagskrá verða venjubundin aðalfundarstörf, farið yfir skýrslu stjórnar, ársreikning og kosið í nýja stjórn foreldrafélagsins. Við viljum hvetja alla til að mæta og taka þátt. Þátttaka foreldra skiptir miklu í tómstundastarfi barnanna okkar.
Bestu kveðjur, stjórnin.
|