|
Smábæjarleikir 2010 – 18 til 22 júní |
|
Jæja gott fólk, þá styttist í smábæjarleikana á Blönduósi. Mæting er á Blönduós milli kl. 20 og kl. 22., föstudaginn 18 júní í grunnskólann v/ húnabraut. Mótinu lýkur á sunnudaginn milli kl. 16-17.
|
|
|
Vogabikarinn er nýtt mótt sem Þróttur Vogum kemur til með að halda helgina 5-6 júní fyrir 3 flokk kvenna í 7 manna bolta, og er þetta mót einungis fyrir þau félög sem ekki eru að spila 11 manna bolta.
Verð er 6900 kr og innifalið er Gisting í Stóru Vogaskóla í eina nótt
Laugardagur :
léttar veitingar í hádeginu, vallarnesti og kvöldverður
Sunnudagur :
morgunverður, hádegisverður, vallarnesti og pizzuveisla í lokin.
einnig er frítt í sund.
|
|
Marteinn Ægisson ráðinn þjálfari 5/6 fl. kvk |
|
Marteinn Ægisson hefur verið ráðinn þjálfari yfir 5. og 6.fl kvenna hann byrjar 10.11 og verða æfingar skv. æfingatöflu.
Við óskum Martein velkominn til starfa.
Stjórn Þróttar |
|
Vignir þjálfari er hættur |
|
Vignir þjálfari er hættur sem þjálfari hjá Þrótti. Við þökkum honum fyrir vel unnin störf á liðnum árum á sama tíma og við óskum honum velfarnaðar á nýjum vettvangi. Æfingar hjá flokkum hans falla niður í dag 6.11 en þjálfaramál ættu að skýrast um helgina.
Stjórn Þróttar |
|
Sumarfrí í yngri flokkum 2009 |
|

Mótanefnd KSÍ tekið þá ákvörðun varðandi niðurröðun leikja sumarið 2009 að engir leikir verði á tímabilinu 20. júlí til og með 5. ágúst í 4. flokki og yngri aldursflokkum. Hér er eingöngu átt við leiki á vegum KSÍ en ekki opin mót aðildarfélaga.
Ákvörðunin er tekin í ljósi þess að mikið er um sumarfrí á þessu tímabili og því vill mótanefnd koma til móts við leikmenn í yngstu flokkum og foreldra þeirra.
Ekki leikið í 4. flokki og yngri aldursflokkum á tímabilinu 20. júlí - 5. ágúst
|
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |