Make Text Bigger Make Text Smaller Reset Text Size
throttur.net

Samstarfsaðilar

Sveitarfélagið Vogar Nautilus Bláa Lónið KSÍ Snerta kassakerfi UMFÍ Þorbjörn Fiskanes Kvígan Norðurál 190.is - Fyrir Vogabúa Hlaðbær - Colas Nesbú egg! - sandur af seðlum!


Þróttarabloggið

Samskiptasvæði þjálfara...

Íslandsmót í Futsal - 5.fl kk

Posted by: vignir in Untagged  on

Sælir strákar.

Laugardaginn 31. janúar mætum kl. 14:30 í íþróttahúsið í Safamýri, við Framheimilið. Munið eftir að taka með utanyfirgalla, legghlífar og innanhússkó og handklæði (allir í sturtu eftir leikina). Ég kem með keppnistreyjurnar, stuttbuxur og sokka. Við munum spila 3 leiki við KFR, Gróttu og Fram. Mótið verður búið ca. fjögur.

Ég koma því á framfæri að þetta verður erfitt mót og ég get ekki lofað því að allir fái að spila jafnmargar mínútur eins og í öðrum mótum. EN VIÐ ÆTLUM AÐ HAFA GAMAN ! Wink

Kveðja, Vignir


OPIÐ HÚS

Posted by: baddi in Untagged  on

OPIÐ HÚS hjá yngri og eldri flokkunum í knattspyrnu var haldin í kvöld í felagsmiðstöðinni. 

Veitt var verðlaun fyrir bestu mætinguna í mánuðinum og fyrir besta leikmann janúarmáðanaðar.   Alexander fekk verðlaun fyrir bestu mætingu og Þórarinn fyrir bestu leikmaður.  Til hamingju strákar!!

 

 


Íslandsmótið innanhús 2009

Posted by: ragnar in Untagged  on

Íslandsmótið í futsal verður 31. janúar í íþróttahúsinu í Garði.

9. stelpur verða valdar sem að fara að keppa. Fyrsti leikur er kl 13:00 og síðasti leikurinn byrja 15:51.

Við leggjum af stað frá íþróttamiðstöðinni kl 12:00.

Með okkur í riðli eru Víðir, Reynir S.,  Breiðablik og Haukar.


Keflavíkurmót næstu helgi

Posted by: vignir in Untagged  on

Mótið í Keflavík verður haldið næstu helgi í Reykjaneshöllinni. Spilað verður í 6 deildum Ensku, Þýsku, Spænsku, Íslensku, Frönsku og Meistaradeildinni. Leikjaniðurröðunin er ekki komin á hreint en heyrst hefur að við séum í Meistaradeildinni.

Fyrirkomulagið verður á þá leið:

Leikið á 4 völlum samtímis. Vallarstærð: 50 x 32 m.

Fjöldi leikmanna í liði: 5 útileikmenn + markvörður

Þátttökugjald: 1500 kr. á hvern þátttakenda

Innifalið: Bikar fyrir sigurlið og verðlaunapeningur fyrir þrjú efstu sætin og pizzuveisla.

Spilað verður í sex deildum

SPÆNSKA og ÞÝSKA deildin:

Fyrstu leikir hefjast kl. 8:00

Leikjum lýkur kl. 11:02

Pizzuveisla og verðlaunaafhending kl. 11:05

ÍSLENSKA og MEISTARA deildin:

Fyrstu leikir hefjast kl. 11:10

Leikjum lýkur kl. 14:46

Pizzuveisla og verðlaunaafhending kl. 14:50.

ENSKA og FRANSKA deildin:

Fyrstu leikir hefjast kl. 14:50

Leikjum lýkur kl. 17:52

Pizzuveisla og verðlaunaafhending kl. 17:55

Kveðja, Vignir


Breyting á æfingatíma í dag

Posted by: vignir in Untagged  on

Æfingin í dag færist til klukkan 18.

Ég verð ekki með ykkur í dag en Baddi ætlar að sjá um æfinguna í staðinn.

Svo er æfing aftur á fimmtudaginn kl. 17

Kveðja, Vignir


Æfingasókn í september

Posted by: vignir in Untagged  on

Hér birtist æfingasókn leikamanna í september. Æfingasókn fyrir október kemur fljótlega.

Aron Hansen Jakobsson 80%

Baltasar Bjarmi Björnsson 90%

Daníel Ratan Þórsson 100%

Gunnar Róbert Rúnarsson 90%

Kristján Jón Haraldsson 100%

Kristján Pálmi Smárason 100%

Sindri Benedikt Gíslason 90%


Æfing

Posted by: vignir in Untagged  on

Sælir drengir,

Takk fyrir laugardaginn ! Smile Það var tekið vel á því og allir fengu að spila mikið.

Minni á æfingu á eftir kl. 18:00, ekki gleyma að koma með vatnsbrúsa .

Mig langar líka að þakka stuðningsmönnum okkar á laugardaginn kærlega fyrir stuðninginn.

*** Var einhver sem var að taka myndir af strákunum ? Ef svo þá endilega að senda mér línu á ringiv@gmail.com ***

Kveðja, Vignir

 

 


Æfingamót 8. nóvember n.k.

Posted by: vignir in Untagged  on

Kæru foreldrar /forráðamenn iðkenda.

Okkur í 5. Flokki karla var boðið að taka þátt í litlu æfingamóti,  laugardaginn 8. nóvember n.k.
Farið verður með tvö 5 manna  lið í Risann (Kaplakrika Hafnarfirði),  spilað verður við FH og Álftanes.  Við fáum lánaða  4. stráka úr 6. Flokki til að spila með okkur. Fyrirkomulagið er á þá leið að spilað verður á hálfan völl, 5 í liði og í 15 mínútur hver leikur. Það getur verið að það sé kalt í húsinu og þá er gott að klæða sig vel. Áætlaður tími í mótið er klukkutími.
Mæting er í síðasta lagi 15:45 í Kaplakrika – við stefnum á að byrja að spila kl. 16:05.

Nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga:
-          Mæta í íþróttafötum, þeim fötum sem þið ætlið að spila í. Markmenn koma með markmannsbuxur ef þeir eiga.
-          Skór, legghlífar, æfingaföt , vatnsbrúsi, ávextir og síðast en ekki síst góða keppnisskapið.
-          Við spilum á inni á gervigrasi þannig að það er í lagi að spila í takkakóm, gervigrassskóm og innanhússkóm.
-          Þeir sem haf ekki tök á að keyra sínum strákum eða geta tekið einhvern með sér, vinsamlegast  látið þjálfara vita tímanlega.
-          Einnig ef einhver forföll verða.

Fótboltakveðja,

Vignir þjálfari
s. 691-0777


6-7 flokkur kvenna

Posted by: iris in Untagged  on


Hæ stelpur.  Hér verða settar inn nýjustu fréttir af 6. og 7. flokk kvenna.  Nauðsynlegt að skoða reglulega.

Kveðja, Íris


Upplýsingasíða fyrir 5. flokk karla Þrótti Vogum

Posted by: vignir in Untagged  on

Sælir piltar. Hérna verða settar inn nýjustu fréttir af 5. flokknum, æfingar, myndir svo eitthvað sé nefnt. Gott er að kíkja inn á síðuna daglega og athuga hvort eitthvað nýtt sé á döfinni .

Kveðja, Vignir